Kynningar- og samráðsfundur Skipulagsstofnunar

mars 15, 2019
Featured image for “Kynningar- og samráðsfundur Skipulagsstofnunar”

Skipulagsstofnun stendur fyrir kynningar- og samráðsfundum um landið og eru allir sem áhuga hafa hvattir til að koma og kynna sér hvernig fyrirhugað er að standa að mótun landsskipulagsstefnu og taka þátt í umræðum um æskilegar áherslur og aðgerðir í landsskipulagsstefnu varðandi loftslagsmál, landslag og lýðheilsu.

Haldinn verður kynningar- og samráðsfundur í Hjálmakletti Borgarnesi 18. mars kl. 15-17.

Dagskrá fundar

•             Lýsing landsskipulagsstefnu, kynning og umræður

•             Umræður um áherslur og aðgerðir í skipulagi um loftslag, landslag og lýðheilsu

Húsið opnar 14.45 og heitt á könnunni.

Allir velkomnir


Share: