Undanfarna mánuði hefur staðið yfir undirbúningur að stofnun Nýsköpunarnets Vesturlands (NÝVEST). Markmiðið með stofnun netsins er að tengja saman alla sem vilja vinna að nýsköpun á Vesturlandi, fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga.
Dagana 13, 15 og 16. september verður farið vítt og breytt um Vesturland til að kynna hugmyndina að stofnun NÝVEST.
Kynningarfundir verða á eftirtöldum stöðum:
Akranes | Breið (HB húsið) | mánudaginn 13. september kl. 12:00 |
Búðardalur | Vínlandssetrið | miðvikudaginn 15. september kl. 12:00 |
Borgarnes | Hjálmaklettur (MB) | miðvikudaginn 15. september kl. 16:00 |
Hellissandur | Röstin | fimmtudaginn 16. september kl. 12:00 |
Stykkishólmur | Árnasetur | fimmtudaginn 16. september kl. 12:00 |
Grundarfjörður | Sögumiðstöðin | fimmtudaginn 16. september kl. 16:00 |
Áhugasamir eru hvattir til að mæta á fundi og kynna sér verkefnið nánar.