Kveðjuhóf og samsæti

ágúst 24, 2022
Featured image for “Kveðjuhóf og samsæti”

Laugardaginn 27. ágúst kl. 15 verður haldið kveðjusamsæti í Félagsheimilinu Þinghamri þar sem Guðmundur Finnsson, húsvörður til fjörutíu ára lætur af störfum eftir farsælan feril.
Af þessu tilefni kemur Helgi Bjarnason frá Laugalandi og fer yfir sögu Þinghamars en fimmtíu ár eru síðan hafist var handa við byggingu hússins.
Kvenfélag Stafholtstungna, Björgunarsveitin Heiðar, Ungmennafélag Stafholtstungna, leikdeildin og húsnefnd Þinghamars standa að kaffisamsætinu og bjóða íbúum til kveðjustundar húsvarðar.
Vertu velkomin-/n


Share: