Kristján Gíslason lætur af störfum hjá Borgarbyggð

maí 28, 2025
Featured image for “Kristján Gíslason lætur af störfum hjá Borgarbyggð”

Kristján Þormar Gíslason lætur af störfum hjá sveitarfélaginu, en hann hefur starfað hjá Borgarbyggð í 27 ár, eða frá árinu 1998. Kristján hefur gegnt margvíslegum störfum, meðal annars sem skólastjóri við Grunnskólann í Borgarnesi, skjalavörður í Ráðhúsi Borgarbyggðar og nú síðast sem þjónustufulltrúi. Við viljum þakka Kristjáni fyrir ánægjulegt samstarf og óska honum velfarnaðar í framtíðinni.

Sömuleiðis láta eftirfarandi starfsmenn af störfum og eru kvaddir með þökk fyrir vel unnin störf: Guðbjörg Guðmundsdóttir, verkefnastjóri í félagsþjónustu, Elín Davíðsdóttir, fulltrúi á skipulags- og umhverfissviði, og Margrét Halldóra Gísladóttir, verkefnastjóri á fjölskyldusviði.


Share: