Kötturinn sleginn úr tunnunni

febrúar 11, 2005
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Það var heldur betur fjör í Óðali á Öskudagsgleði síðasta miðvikudag þegar börn fjölmenntu í félagsmiðstöðina sína og slógu köttinn úr tunnunni. Tunnan reyndist innihalda sælgæti en ekki kött þegar hún gaf sig.
Stjórn nemendafélags G.B. stýrði leikjum og dansað var í hinum og þessum furðufötum. Að lokum voru veittar viðurkenningar fyrir frumlega hönnun á öskudagsbúningum.
ij.
 
 

Share: