Körfuknattleiksdeild styrkir Bostonferð Torfa Lárusar

mars 15, 2005
Á hinum magnaða heimaleik á móti Fjölni í átta liða úrslitum hér síðastliðinn sunnudag tilkynnti stjórn deilarinnar að kaffisjóður kvöldsins rynni óskertur til Torfa Lárusar Karlssonar sem senn fer í erfiða læknisferð til Boston.
Vegna þess hve keppnisbúningar Skallagríms og Boston Celtics eru áþekkir gaf Sparisjóðurinn Torfa keppnisbúning Skallagríms til að sýna þeim þarna í Boston okkar græna og gula búning þannig að Torfi verður glæsilegur og verðugur fulltrúi Skallagríms þarna úti.
Benedikt þjálfari Fjölnis gaf fyrstur manna veglega upphæð og samtals gáfu gestir á leiknum 34 þúsund krónur fyrir stuðningsmannakaffið þetta kvöld til þess að styrkja Torfa og fjölskyldu hans.
ij
 

Share: