AUGLÝSINGUM SKIPAN Í KJÖRDEILDIR Í BORGARBYGGÐ
Við þjóðaratkvæðagreiðslu laugardaginn 9. apríl 2011 
er skipan í kjördeildir í Borgarbyggð sem hér segir: 
Borgarneskjördeild í Hjálmakletti (menntaskólanum) í Borgarnesi. Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Langár og Gljúfurár. 
Kjörfundur hefst kl. 9,oo og lýkur kl. 22,oo
Lindartungukjördeild í félagsheimilinu Lindartungu
Þar kjósa íbúar í fyrrum Kolbeinsstaðahreppi. 
Kjörfundur hefst kl. 10,oo og lýkur kl. 18,oo
Lyngbrekkukjördeild í félagsheimilinu Lyngbrekku
Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Langár og Hítarár. 
Kjörfundur hefst kl. 10,oo og lýkur kl. 18,oo
Þinghamarskjördeild í félagsheimilinu Þinghamri, Varmalandi
Þar kjósa íbúar í Stafholtstungum, Norðurárdal, Bifröst og Þverárhlíð. Kjörfundur hefst kl. 10,oo og lýkur kl. 20,oo
Brúaráskjördeild í félagsheimilinu Brúarási
Þar kjósa íbúar Hvítársíðu og Hálsasveitar. 
Kjörfundur hefst kl. 10,oo og lýkur kl. 18,oo
Kleppjárnsreykjakjördeild í Grunnskóla Borgarfjarðar Kleppjárnsreykjum. Þar kjósa íbúar Hvanneyrar, Andakíls, Bæjarsveitar, Lundarreykjadals, Flókadals og Reykholtsdals. 
Kjörfundur hefst kl. 10,oo og lýkur kl. 20,oo
Vinsamlega athugið mismunandi tíma á lokun kjördeildanna.
Kjósendur eru hvattir til að athuga í hvaða kjördeild þeir eiga 
að kjósa og hafa persónuskilríki með sér á kjörstað. 
Á kjördag verður kjörstjórn Borgarbyggðar með aðsetur
í Hjálmakletti í Borgarnesi.  Sími hennar er 433-7705. 
Kjörstjórn Borgarbyggðar