Kennarastaða við Grunnskólann í Borgarnesi

maí 13, 2019
Featured image for “Kennarastaða við Grunnskólann í Borgarnesi”

Laus staða við Grunnskólann í Borgarnesi

Við leitum að öflugum einstaklingi í tímabundna stöðu frá og með 1. ágúst 2019

  • Smíðakennsla í 50% eða 100% stöðuhlutfall

Menntun, reynsla og hæfni:

  • Kennsluréttindi í grunnskóla og kennslureynsla.
  • Ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar.
  • Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og sköpunarkjarkur.
  • Jákvæðni, ábyrgðarkennd og skipulagshæfileikar.

Óskað er eftir einstaklingi sem er tilbúinn að taka þátt í virku og skapandi skólastarfi og hefur hugrekki til þess að feta nýjar leiðir.

Grunnskólinn í Borgarnesi er heildstæður skóli með um 300 nemendur í 1.-10. bekk og tekur virkan þátt í skólasamfélagi Borgarbyggðar.

Mikil þróun á sér stað innan skólans og einstakt tækifæri fólgið í því að vera hluti af þeirri sterku heild sem kennarar og starfsfólk skólans mynda.

Umsóknarfrestur er til 24.maí 2019 

Umsóknir skal senda til Júlíu Guðjónsdóttur skólastjóra, julia@grunnborg.is einnig er hægt að fá nánari upplýsingar hjá henni í síma 862-1519.


Share: