KB – bankamótið stendur nú yfir

júní 25, 2005
Aðalsteinn formaður setur mótið í gær.
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Um 860 þátttakendur eru nú að spila knattspyrnu á Skallagrímsvelli og er líf og fjör í Borgarnesi þessa helgi vegna mótsins.
Fjölmargir foreldrar fylgja með eins og vanalega og fylla tjaldstæði bæjarins og tjaldstæði í nágrenni hans.
Mótið gengur vel og menn í góðu jafnvægi þrátt fyrir smá vætu.
Skemmtidagskrá kvöldsins verður flutt inn í íþróttamiðstöðina en þar hefur verið mikil umferð í dag en vel á annað þúsund manns hafa brugðið sér í sund í dag.
ij.
 

Share: