Karlakórinn ,,Gamlir Fóstbræður” heldur tónleika í Borgarneskirkju

júní 18, 2008
Tónleikar karlakórsins ,,Gamlir Fóstbræður” verða í Borgarneskirkju laugardaginn 21.júní kl. 10.30.
Stjórnandi kórsins er Jónas Ingimundarson.
Gestasöngvari er tenórinn Gunnar Guðbjörnsson óperusöngvari.
Á efniskrá kórsins eru íslenskar og erlendar söngperlur. Tónleikar þessir eru í boði velunnara kórsins og því er aðgangseyrir enginn.
Kórfélagar vonast til þess að sem flestir sjái sér fært að mæta og nýta sér þetta einstaka tækifæri og til að njóta góðrar tónlistar.
 
(Fréttatilkynning)

Share: