Kaffihús í Brákarhlíð

september 6, 2019

Góð þátttaka var á fyrsta kaffihúsi Brákarhlíðar sem haldið var fimmtudaginn 4. september sl. Þema kaffihússins var rúllutertur sem voru með sultu, smjörkremi og með rjóma og ávöxtum. Þá voru á boðstólum heitar brauðrúllutertur og snúðar. Kaffið var borið fram í sparistelli Brákarhlíðar sem telur hundruði bolla og diska af öllum gerðum. Kaffihúsið verður haldið mánaðarlega, fyrsta fimmtudag í mánuði og hafa íbúar verið duglegir við að mæta og gleðjast með íbúum Brákarhlíðar.


Share: