K100 í Borgarbyggð

maí 22, 2020
Featured image for “K100 í Borgarbyggð”

Útvarpsstöðin K100 verður í beinni útsendingu frá Borgarbyggð í dag. Morgunþáttur stöðvarinnar, Ísland vaknar hófst stundvíslega kl. 06:00 í morgun og síðdegisþátturinn með Loga Bergmann og Sigga Gunnars hefst kl. 16:00. Auk þess mun Auðunn Georg miðla fréttum frá sveitarfélaginu í allan dag. Fjöldi skemmtilegra gesta frá Borgarbyggð munu koma fram í þáttunum.

Þess má til gamans geta að í tilefni af þessu verkefni birtist viðtal við Þórdísi Sif Sigurðardóttur sveitarstjóra í Morgunblaðinu í gær. Lesa má fréttina hér.

Íbúar eru hvattir til þess að stilla á K100. Auk þess er hægt að horfa á útsendinguna inn á Sjónvarp Símans og inn á K100.is.


Share: