Jól í skókassa

október 26, 2011
Áttunda árið í röð stendur KFUM & KFUK á Íslandi fyrir verkefninu ,,Jól í skókassa” Þetta verkefni er unnið af hópi úr KFUM og KFUK og felst í því að fá börn jafnt sem fullorðna til að setja nokkrar gjafir í skókassa. Kassanum er síðan útdeilt til þurfandi barna í Úkraínu. Markmiðið með verkefninu er að gleðja þurfandi börn í anda jólanna. Það hefur sannarlega tekist síðastliðin ár og hafa þau sem standa að verkefninu fylgt því eftir og tekið þátt í dreifingu gjafanna í Úkraínu. Þar hafa þau upplifað mikla gleði barnanna með gjafirnar.
 
Úkraína er stórt land og þar búa um 50 milljónir manna.Atvinnuleysi er mikið og ástandið víða bágborið.Á svæðunum þar sem skókössunum er dreift er allt að 80% atvinnuleysi og fara kassarnir meðal annars á munaðarleysingjaheimili, barnaspítala og til barna fátækra einstæðra foreldra.
 
Fólk er hvatt til þess að taka þátt og fylgja leiðbeiningum en það er mikilvægt að börnin fái svipaðar gjafir.
Byrjið á að finna tóman skókassa og pakkið honum inn í jólapappír.Athugið að mikilvægt er að pakka lokinu sérstaklega inn svo hægt sé að opna pakkann.Ákveðið fyrir hvaða aldurshóp gjöfin á að vera, strák eða stelpu 2-4 ára, 5-9 ára, 10-14 ára og 15-18 ára og merkið með viðeigandi merkimiða á lokið.Setjið svo gjafir eins og ritföng, föt, leikföng, hreinlætisvörur og sælgæti í skókassann.Best er að setja einn hlut úr hverjum þessara flokka í kassann.Setjið að lokum 500-800 kr í umslag efst í kassann fyrir sendingarkostnaði.
 
Tekið verður á móti skókössum í aðalstöðvum KFUM og KFUK, Holtavegi 28, alla virka daga frá kl. 9-17.Síðasti skiladagur er laugardagurinn 12. nóvember frá kl. 11-16.Þann dag fer fram kynning á verkefninu, léttar veitingar verða í boði og eru allir hjartanlega velkomnir.
Hér er linkur á móttökustaði á landsbyggðinni http://skokassar.net/mottokustaðir
 
Við bendum á heimasíðu verkefnisins www.skokassar.net og Flikr ljósmyndasíðuna http://www.flickr.com/photos/skokassar/
Ef þið viljið frekari upplýsingar, hafið samband við Björgu Jónsdóttur í síma 867 4517, eða bjorjon@gmail.com.
Með kærri kveðju f.h. aðstandenda verkefnisins,
Ragnheiður Kristín Pálsdóttir
 

Share: