Jólatréssala björgunarsveitanna

desember 13, 2006
Björgunarsveitin Heiðar verður með jólatréssölu í Daníelslundi við Svignaskarð laugardaginn 16. des. og sunnudaginn 17. des milli 13.00 og 17.00. Þetta er gert er samvinnu við Skógræktarfélag Borgarfjarðar og björgunarsveitarmenn aðstoða fólk við að koma trénu að bílnum.
Björgunarsveitin Brák er einnig með jólatréssölu og er hún við húsnæði Landnámsseturs við Brákarsund í Borgarnesi. Þar verður opið 15. til 22.desember frá kl. 13:00 til 18:00, og á Þorláksmessu verður opið frá kl. 13:00 til 20:00.
 

Share: