Jólamarkaður Ullarselsins á fimmtudaginn

desember 6, 2006
Árlegur Jólamarkaður Ullarselsins á Hvanneyri verður fimmtudaginn 7. desember frá kl. 16.00 – 19.00. Jósefína Morrel kemur með listaverkin sín og sýnir handgerða hnífa. Steinunn Eiríksdóttir verður með handverkið sitt. Börn úr Andakílsskóla selja jólakortin sem þau hafa verið að búa til. Danskrakkarnir sem eru að safna fyrir keppnisferð til Írlands verða með flóamarkað, kökubasar og sitthvað skemmtilegt Eitthvað verður gott í gogginn að hætti hússins. Í tilkynningu frá Ullarselinu segir að allir séu velkomnir.
 

Share: