Jólaljósin tendruð í Skallagrímsgarði

desember 3, 2021
Featured image for “Jólaljósin tendruð í Skallagrímsgarði”

Á mánudaginn sl. mættu galvösk börn úr 1. bekk grunnskólans í Borgarnesi í Skallagrímsgarð til þess að kveikja á jólaljósunum á jólatrénu. Vegna aðstæðna var ekki hægt að hafa hefðbundna aðventuhátíð í ár og því ákveðið hafa fámennan viðburð.

Jólasveinarnir Hurðaskellir og Gáttaþefur mættu á svæðið, tóku nokkur lög með börnunum og dönsuðu í kringum jólatréð. Gleðin skein úr hverju andliti og ljóst að jólasveinarnir vöktu mikla lukku.


Share: