Jólaball í sal Menntaskóla Borgarfjarðar

desember 22, 2009
Foreldrafélög leikskólanna Uglukletts og Klettaborgar, í samstarfi við Lionsklúbb Borgarness, Lionsklúbbinn Öglu og Menntaskóla Borgarfjarðar, halda jólaball þann 27. desember í Menntaskólanum kl. 11.00 – 13.00.
Dansað verður kringum jólatréð og góðir gestir líta við og gleðja börnin. Útskriftarnemar Menntaskóla Borgarfjarðar sjá um kaffisölu á staðnum. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
 
 

Share: