Jólaandinn sveif yfir Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum í síðustu viku

desember 23, 2019
Featured image for “Jólaandinn sveif yfir Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum í síðustu viku”

Skólastarfið ber þess ótvíræð merki að jólin eru að ganga í garð.

Búið er að skreyta í öllum deildum með ljósum og jólatrjám sem nemendur sóttu samkvæmt ríkjandi hefð.  Helgileikurinn var að venju sýndur í Hvanneyrarkirkju af nemendum Hvanneyrardeildar með sínum fasta hátíðleik. Þá voru litlu jólin haldin í hverri bekkjardeild og nemendur borðuðu saman hátíðarmat síðasta skóladaginn fyrir jólaleyfi. Einnig hafa nemendur GBF sem stunda nám í Tónlistarskóla Borgarfjarðar haldið tónfund fyrir samnemendur sína og þar voru jólalögin spiluð og sungin. 


Share: