ÍTREKUN – Söfnun á rúlluplasti í Borgarbyggð

nóvember 28, 2008
Borgabyggð býður bændum upp á þá þjónustu að til þeirra sé sótt rúlluplast allt að fjórum sinnum á ári þeim að kostnaðarlausu. Þessa þjónustu þarf að panta.
 
Af gefnu tilefni eru þeir bændur sem ekki hafa nú þegar pantað þessa þjónustu hvattir til þess að tilkynna það nú þegar til skrifstofu Borgarbyggðar hvort þeir vilja vera með.
 
Fyrstu söfnun er lokið. Næsta söfnun er 20. til 28. febrúar 2009, síðan 13. til 22. apríl 2009 og loks 6. til 15. júní 2009.
Pöntunarseðill var á baksíðu síðasta Fréttabréfs Borgarbyggðar sem dreift er á öll heimili í sveitarfélginu. Sjá hér síðasta fréttabréf. Í því má nálgast frekari upplýsingar um söfnunina.
 

Share: