Íþróttamiðstöðin Borgarnesi

febrúar 1, 2002

Íþróttamiðstöðin í Borgarnesi óskar eftir starfsmanni í fullt starf.
( Kvenmaður v. baðvörslu í kvennaböðum )
Starfið er vaktavinna sem felst m.a. í baðvörslu, gæslu við sundlaugarmannvirki úti og inni, í íþróttahúsi auk þrifa, afgreiðslu o.fl.
Starfsmaðurinn þarf að hafa ríka þjónustulund að upplagi, gott lag á börnum og unglingum auk áhuga og skilning á íþrótta- og æskulýðsstarfi.
Laun samkv. launatöflu SFB.
Skilyrði fyrir ráðningu er að starfsmaðurinn standist hæfnipróf sundstaða.
Umsækjandi þarf að geta hafið störf 26. feb. n.k.
Vinnustaðurinn er reyklaus.

· Umsóknareyðublöð fást á bæjarskrifstofunni Borgarbraut 11.
· Umsóknarfrestur er til mánudagsins 15. febrúar. 2002.
· Umsóknum skal skila á bæjarskrifstofuna.

Nánari upplýsingar gefur:
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi í síma: 437-1224


Share: