Íþróttamaður Borgarbyggðar 2004

janúar 27, 2005
Í kvöld fimmtudagskvöld verða veittar viðurkenningar fyrir besta íþróttafólk félaga og deilda á síðasta ári í Borgarbyggð við hátíðlega athöfn eftir leik Skallagríms og Hamars/Selfoss um kl. 20.3o í íþróttamiðstöðinni. Þeir sem skarað hafa fram úr á árinu eru tilnefndir af stjórnum deilda og félaga til kjörs á Íþróttamanni Borgarbyggðar árið 2004. Tómstundanefnd Borgarbyggðar hefur veg og vanda að kjöri þessu.
 
Aðalstjórn Umf. Skallagríms veitir viðurkenningar við sama tækifæri og einnig verður veitt viðurkenning úr Minningarsjóði Auðuns Hlíðkvists Kristmarssonar.
 
Fjölmennum á pallana og hyllum íþróttafólkið okkar !
ij.
 

Share: