Íslensku safnaverðlaunin

apríl 13, 2010
Félag íslenskra safna og safnmanna og Íslandsdeild ICOM (Alþjóðaráð safna) standa saman að íslensku safnaverðlaununum sem veitt eru annað hvert ár safni sem með starfsemi sinni þykir skara fram úr.
Óskað er eftir ábendingum frá almenningi, stofnunum og félagasamtökum. Til greina koma söfn og einstök verkefni á sviði safna sem þykja til eftirbreytni og íslensku safnastarfi til framdráttar. Bent er á að tilnefna má sýningar, útgáfur og annað er snýr að þjónustu við safngesti jafnt sem verkefni er lúta að faglegu innra starfi.

Valnefnd velur þrjú söfn eða verkefni sem tilnefnd verða til verðlaunanna á alþjóðadegi safna þann 18. maí en afhending þeirra fer fram á íslenska safnadaginn 11. júlí 2010.

Ábendingum skal skilað til Safnaráðs, Þjóðminjasafninu við Suðurgötu, 101 Reykjavík eða á netfangið safnarad@safnarad.is merkt Safnaverðlaun fyrir 19. apríl 2010.

Frestur til að skila inn ábendingum er að renna út og þitt innlegg er mikilvægt!

 

Share: