Íbúafundur um skipulagsmál

desember 12, 2005
Miðvikudagskvöldið 14. desember kl. 20.30 verður haldinn íbúafundur á Hótel Hamri um skipulagsmál í Borgarnesi. Á fundinum verða kynntar niðurstöður vinnuhópa sem störfuðu á íbúafundi um skipulagsmál sem fram fór 8. október s.l. Vinnuhóparnir fjölluðu um eftirtalda þætti; framtíð Brákareyjar, skipulag á miðsvæði bæjarins, ný byggingasvæði og lega þjóðvegar 1 um Borgarnes.
Allir velkomnir
Borgarbyggð
 

Share: