Íbúafundurinn um framkvæmdir 2008 er í kvöld

mars 17, 2008
Íbúafundur um framkvæmdir 2008 er í kvöld 17. mars á Hótel Borgarnesi kl. 20:30. Þar verða kynntar helstu framkvæmdir á vegum sveitarfélagsins á árinu 2008.
Á fundinum verða einnig fulltrúar frá Orkuveitu Reykjavíkur og Vegagerðinni vegna fyrirhugaðra fráveituframkvæmda í Borgarnesi og vegna yfirstandandi framkvæmda á hringvegi 1 í Borgarnesi.
Mynd: Ragnheiður Stefánsdóttir

Share: