Íbúafundur í Brún í kvöld um aðalskipulagstillögu Borgarbyggðar

nóvember 19, 2008
Haldinn verður íbúafundur í félagsheimilinu Brún í kvöld, 19. nóvember, kl. 20:30. Þar verða kynnt drög að aðalskipulagstillögu sveitarfélagsins, en sérstaklega farið í kynningu á skipulagi Reykholts, Kleppjárnsreykja, Bæjar og Hvanneyrar.
Þetta er annar fundurinn af tveimur sem haldnir verða. Sjá umfjöllun um fundina í eldri frétt frá 7. nóvember.
Aðalskipulagstillöguna má nálgast hér á heimasíðunni. Sjá hér.
 

Share: