Borgarbyggð boðar íbúa til fundar um þjónustu sveitarfélagsins, helstu framkvæmdir sem framundan eru og þau mál sem efst eru á baugi í dag. Á fundunum munu sveitarstjóri og sviðsstjórar sveitarfélagsins ræða þessi málefni við íbúa.
Fundirnir í dag, fimmtudaginn 3. apríl, fara fram í Skemmunni á Hvanneyri, kl. 17.00 og í Logalandi, kl.20.30