Hvítárbrúarsýning í safnahúsi

mars 1, 2019
Featured image for “Hvítárbrúarsýning í safnahúsi”

Laugardagsopnun verður á Hvítárbrúarsýningunni í Safnahúsinu laugardaginn 2. mars n.k. kl. 13-16. Helgi Bjarnason verður á staðnum og veitir leiðsögn. Helgi átti á sínum tíma frumkvæði að þessu verkefni og annaðist efnisöflun, ritun og val á ljósmyndum fyrir sýninguna. Eru honum þökkuð vönduð og góð störf. Sýningin var opnuð á 90 ára afmælisdegi brúarinnar 1. nóvember 2018 og aðsóknin hefur sannað að hún á sér stað í hjarta landans, ekki síst Borgfirðinga og Mýramanna. Sýningin er tileinkuð minningu Þorkels Fjeldsted bónda í Ferjukoti sem lést langt fyrir aldur fram árið 2014. Þorkeli var afar annt um að miðla sögu Hvítárbrúarinnar og bjó í grennd hennar alla tíð. Hann var mörgum kunnur og mikill þekkingarbrunnur um brúna og hlutverk Hvítárinnar í lífi fyrri kynslóða, þar sem hún var í senn nægta brunnur og erfiður farartálmi.


 


Sýningunni lýkur föstudaginn 8. mars og næsta stóra verkefni Safnahúss er myndlistarsýning listakonunnar Josefinu Morell, sú sýning verður opnuð 16. mars kl. 13.00.


 


Ljósmynd:


 


Helgi Bjarnason ásamt fjölskyldu sinni við opnun sýningarinnar 1. nóvember s.l.


 


Myndataka: Jóhanna Skúladóttir.


Share: