Húsverndunarsjóður auglýsir

febrúar 26, 2007
Borgarkirkja – Ljósm.: RS
Stjórn Húsaverndunarsjóðs Borgarbyggðar hefur auglýst eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum fyrir árið 2007.
 
Hlutverk sjóðsins er að veita styrk til endurgerða eða viðgerða á húsnæði eða öðrum mannvirkjum í Borgarbyggð sem sérstakt varðveislugildi hafa af listrænum eða menningasögulegum ástæðum, enda séu framkvæmdir í samræmi við upprunalegan byggingarstíl húss eða mannvirkis og í samræmi við sjónarmið minjavörslu.
Umsóknum um styrki úr sjóðnum skulu fylgja greinargóðar verklýsingar og teikningar af fyrirhuguðum framkvæmdum.
Veittir eru styrkir til verkefna sem er að minnsta kosti lokið að tveimur þriðju hluta.
Umsóknir berist menningarfulltrúa Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, 310 Borgarnesi, í síðasta lagi 26. mars 2007.
 
Ljósmyndin með þessari frétt er tekin af Ragnheiði Stefánsdóttur og sýnir Borgarkirkju frá listaverkinu Sonatorreki eftir Ásmund Sveinsson.

Share: