Hunda- og kattahreinsun 2012

nóvember 21, 2012
Lögbundin hunda- og kattahreinsun verður í Borgarbyggð á eftirtöldum stöðum:
– Hvanneyri mánudaginn 26. nóvember.
– Bifröst þriðjudaginn 27. nóvember.
– Borgarnesi miðvikudaginn 28. nóvember.
– Reykholt og Kleppjárnsreykir eftir samkomulagi.
Vegna mikilla biðraða sem sköpuðust í fyrra við hunda- og kattahreinsun í Borgarnesi er í ár boðið upp á að koma með hundana á ólíkum tíma eftir skráningarnúmerum þeirra auk þess sem þjónustutími vegna kattahreinsunar verður lengdur.
Í auglýsingu um hunda- og kattahreinsun eru frekari upplýsingar. Sjá hér.
 

Share: