
Minnt er á að helmingsafsláttur er á hundaleyfisgjöldum hjá Borgarbyggð ef eigendur hafa farið með hunda sína á hlýðninámskeið hjá viðurkenndum hundaskóla. Frekari upplýsingar má nálgast hér á heimasíðu Borgarbyggðar.
Hundaeigendur eru hvattir til að sækja svona hlýðninámskeið og skila inn vottorði á skrifstofu Borgarbyggðar þegar því er lokið.
Eigendur óskráðra gæludýra á þéttbýlisstöðum Borgarbyggðar eru ennfremur hvattir til að skrá dýr sín hjá sveitarfélaginu eins og reglur segja til um.