Hundahlýðninámskeið í Borgarnesi

september 18, 2008
Hundaskólinn ,,Hundalíf” heldur hvolpa og grunnnámskeið hjá KB búrekstrardeild í Borgarnesi dagana 24. september, 1. og 8. október 2008. Sjá hér auglýsingu um námskeiðið.

Minnt er á að helmingsafsláttur er á hundaleyfisgjöldum hjá Borgarbyggð ef eigendur hafa farið með hunda sína á hlýðninámskeið hjá viðurkenndum hundaskóla. Frekari upplýsingar má nálgast hér á heimasíðu Borgarbyggðar.

Hundaeigendur eru hvattir til að sækja svona hlýðninámskeið og skila inn vottorði á skrifstofu Borgarbyggðar þegar því er lokið.
 
Eigendur óskráðra gæludýra á þéttbýlisstöðum Borgarbyggðar eru ennfremur hvattir til að skrá dýr sín hjá sveitarfélaginu eins og reglur segja til um.

Share: