Lögbundin hunda- og kattahreinsun verður í Borgarbyggð sem hér segir:
Borgarnesi 30. nóvember í Grímshúsinu í Brákarey.
- ATH breytt staðsetning.
- kl. 15:00 – 19:00.
- Kristín Þórhallsdóttir annast hreinsunina.
Borgarnesi 7. desember í Grímshúsinu í Brákarey.
- ATH breytt staðsetning.
- kl. 15:00 – 19:00.
- Gunnar Gauti Gunnarsson annast hreinsunina.
Hvanneyri 8. desember í “gamla BÚT-húsinu”
- kl. 15:00 – 19:00.
- Edda Þórarinsdóttir annast hreinsunina
ATHUGIÐ – mikilvægt er að gæta að sóttvörnum, það er að segja halda 2ja metra fjarlægð, bera andlitsgrímu, huga vel að handþvotti og sprittun.
Tryggt verður að hámarksfjöldi einstaklinga í rýmum fari ekki yfir þær reglur sem gilda hverju sinni og því geta gestir átt von á einhverjum biðtíma.
Lögum samkvæmt skulu allir hundar, kettir og kanínur vera örmerkt og skráð í miðlægan gagnagrunn, www.dyraaudkenni.is. Skráningarskylda er á öllum hundum og köttum í þéttbýli Borgarbyggðar.
Skylt er að ormahreinsa alla hunda 4 mánaða og eldri árlega, ormahreinsun er innifalin í leyfisgjaldi sveitarfélagsins. Óskráð gæludýr eru velkomin og geta eigendur nálgast skráningargögn á staðnum.
Þeir sem ekki nýta sér þessa þjónustu þurfa að skila vottorði fyrir áramót um að dýr þeirra hafi verið hreinsuð annars staðar. Eftirtaldir dýralæknar eru starfandi í Borgarbyggð:
Gunnar Gauti Gunnarsson, s. 892 – 3230
Gunnar Örn Guðmundsson, s. 892 – 5666
Hildur Edda Þórarinsdóttir, s. 892 – 3552
|
Kristín Þórhallsdóttir s. 863 – 7372
Margrét Katrín Guðnadóttir- s. 898 – 0034
Harpa Ósk Jóhannesdóttir- s. 865-2781
|
Upplýsingar gæludýrahald í Borgarbyggð er að finna á heimasíðu Borgarbyggðar. Þá er hægt að hafa samband við Ráðhús í síma 433-7100 eða gegnum netfangið borgarbyggd@borgarbyggd.is.