Lögbundin hunda- og kattahreinsun verður í Borgarbyggð sem hér segir:
Borgarnesi 11. nóvember í slökkvistöðinni við Sólbakka.
- Fyrir hunda kl. 16:30 -19:00.
- Fyrir ketti kl. 19:15 – 20:15.
Bifröst 13. nóvember í kyndistöðinni kl. 16:30 – 18:00.
- Gunnar Gauti Gunnarsson annast hreinsunina ofangreinda daga.
Borgarnesi 19. nóvember í slökkvistöðinni við Sólbakka kl. 17:00 – 19:00.
- Margrét Katrín Guðnadóttir annast hreinsunina.
Hvanneyri 20. nóvember í “gamla BÚT-húsinu” kl. 16:30 – 19:00.
- Edda Þórarinsdóttir annast hreinsunina ofangreinda daga.
Lögum samkvæmt skulu allir hundar, kettir og kanínur að vera örmerkt og skráð í miðlægan gagnagrunn, www.dyraaudkenni.is. Skráningarskylda er á öllum hundum og köttum í þéttbýli Borgarbyggðar.
Skylt er að ormahreinsa alla hunda 4 mánaða og eldri árlega, ormahreinsun er innifalin í leyfisgjaldi sveitarfélagsins. Óskráð gæludýr eru velkomin og geta eigendur nálgast skráningargögn á staðnum.
Þeir sem ekki nýta sér þessa þjónustu þurfa að skila vottorði fyrir áramót um að dýr þeirra hafi verið hreinsuð annars staðar. Eftirtaldir dýralæknar eru starfandi í Borgarbyggð:
Gunnar Gauti Gunnarsson, s. 892 – 3230
Gunnar Örn Guðmundsson, s. 892 – 0030
Hildur Edda Þórarinsdóttir, s. 892 – 3552
Kristín Þórhallsdóttir s. 863 – 7372
Margrét Katrín Guðnadóttir- s. 898 – 0034
Harpa Ósk Jóhannesdóttir- s. 865-2781
|
|
Upplýsingar gæludýrahald í Borgarbyggð er að finna á heimasíðu Borgarbyggðar.
Þá er hægt að hafa samband við Ráðhús í síma 4337100 eða gegnum netfangið borgarbyggd@borgarbyggd.is.