Hreinsun rotþróa

maí 23, 2016

Hreinsun rotþróa sumarið 2016 er hafin og sér fyrirtækið Holræsa- og stífluþjónusta Suðurlands um verkið.  Þau svæði sem á að taka þetta árið eru   Norðurárdalur, Hvítársíða og Þverárhlíð.  Til þess að auðvelda hreinsunina þurfa húseigendur að tryggja óheft aðgengi , sjá til þess að hlið séu ólæst svo og merkja staðsetningu rotþróar.

Hægt er að sjá  nánari upplýsingar inn á rotþróakorti, m.a. hvenær rotþrær voru tæmdar síðast.

https://borgarbyggd.is/kortrotthraer/rotthraer.html

Umhverfis-og skipulagssvið


Share: