Minnt er á að hreinsunarátak í dreifbýli stendur yfir og gámar verða til staðar til 16. október. Vegna mistaka var röng staðsetning kynnt í fyrri auglýsingu. Vakin er athygli á að gámar eru við Síðumúla en ekki Síðumúlaveggi. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum.
Hreinsunarátak að hausti verður dagana 2.- 16. október. Gámar fyrir timbur- og málmúrgang verða aðgengilegir á eftirtöldum stöðum:
Bjarnastaðir – á eyrinni
(ath. að hliðið á að vera lokað) Brautartunga Brekka í Norðurárdal Bæjarsveit Grímsstaðir |
Hvanneyri
Högnastaðir Lindartunga Lyngbrekka Síðumúli |
Mikilvægt er að rétt sé flokkað í gámana og að úrgangi sé vel raðað svo plássið nýtist sem best. Þegar gámar eru við það að fyllast hafið samband við Gunnar hjá Íslenska gámafélaginu, í síma 840-5847.
Heyrúlluplasti verður framvegis safnað á u.þ.b. tveggja mánaða fresti. Næsta plastsöfnunarferð er vikuna 25.-29. september. Plastsöfnunardagar verða birtir á sorphirðudagatali næst þegar það verður gefið út.
Opnir gámar fyrir almennt heimilissorp verða fjarlægðir af eftirtöldum stöðum í síðasta lagi 15. október: Lindartunga, Lyngbrekka, Lundar, Skeljabrekka, Brautartunga, Högnastaðir.
Umhverfis-og skipulagssvið Borgarbyggðar