Hreinsunarátak í þéttbýli 20. – 27. apríl

apríl 14, 2021
Featured image for “Hreinsunarátak í þéttbýli 20. – 27. apríl”

Gámar fyrir gróðurúrgang, málma, og timbur verða aðgengilegir þessa viku á eftirfarandi stöðum:

  • Bifröst
  • Varmaland
  • Kleppjárnsreykir
  • Hvanneyri

Þegar gámar eru að fyllast, hafið samband við Gunnar hjá ÍGF, í síma 840-5847.

ATH að gámar eru EKKI fyrir úr sér gengin ökutæki!

Minnt er á ákvæði byggingarreglugerðar:

„Lóðarhafa er skylt að halda vexti trjáa og runna á lóðinni innan lóðarmarka. Sinni hann því ekki og þar sem vöxtur trjáa eða runna fer út fyrir lóðarmörk við götur, gangstíga eða opin sv æði er veghaldara eða umráðamanni svæðis heimilt að fjarlægja þann hluta er truflun eða óprýði veldur, á kostnað lóðarhaf a að undangenginni aðvörun.“

Afgreiðslutímar í móttökustöð við Sólbakka

Gámastöðin við Sólbakka er opin alla daga: sunnudaga til föstudags milli klukkan 14:00 og 18:00 og laugardaga milli klukkan 10:00 og 14:00.

Stóri plokkdagurinn er 24. apríl nk. og eru íbúar hvattir til að fara út og plokka í sínu nærumhverfi.


Share: