Hreinsunarátak í Borgarbyggð haustið 2025

október 21, 2025
Featured image for “Hreinsunarátak í Borgarbyggð haustið 2025”

Borgarbyggð hefur samið við endurvinnslufyrirtækið Hringrás ehf. um söfnun ákveðinna úrgangsflokka í dreifbýli haustið 2025.

Í samkomulaginu felst að Hringrás mun sækja heim eftirfarandi flokka íbúum að kostnaðarlausu.

  • Bílflök og annað almennt brotajárn
  • Ryðfrítt stál og ál
  • Rafgeyma
  • Rafmótora
  • Hjólbarða

Fyrirkomulagið er þannig að íbúar safna úrgangsefni saman á einn stað við heimili sín þangað sem Hringrás sækir efnið. Hringrás tekur á móti pöntunum í síma 5501900 eða afgreidsla@hringras.is

Við pöntun þarf að koma fram:

  • Nafn, sími og netfang þess sem pantar
  • Nákvæm staðsetning (bær og svæði)
  • Áætlað magn
  • Er óskað eftir þjónustu kranabíls

Frekari upplýsingar veitir Hafþór Ægir Þórsson hjá Hringrás í síma 6608916

 

Frestur til að senda pöntun er til 1. nóvember 2025


Share: