Hollvinasamtökin fá góða gjöf

apríl 21, 2007
Englendingavík -ljósm: RS
Kaupfélag Borgfirðinga og starfsmannafélag þess færðu Hollvinasamtökum Englendingavíkur góða gjöf í dag við hátíðlega athöfn vegna enduropnunar sýningarinnar um Pourquoi-pas? í Tjernihúsi. Um var að ræða 1.000.000 krónur og það var Þorvaldur T. Jónsson stjórnarformaður KB sem afhenti styrkinn til Finnboga Rögnvaldssonar sem tók við fénu fyrir hönd Hollvinasamtakanna.
Ljósmynd með frétt: Úr Englendingavík – ljósmynd Ragnheiður Stefánsdóttir.

Share: