Hlýnandi veður og möguleg asahláka um helgina

október 30, 2025
Featured image for “Hlýnandi veður og möguleg asahláka um helgina”

Vakin er athygli á að hlýnandi veður er spáð á morgun (31.10) og um helgina. Búast má við mögulegri asahláku. Slíkt getur skapað hálku og leysingar á götum, stígum og lóðum, sérstaklega þar sem klaki og snjór bráðna hratt.
Íbúar eru hvattir til að tryggja að niðurföll við heimili þeirra séu opin og laus við snjó og klaka, svo frárennsli gangi eðlilega og komið sé í veg fyrir vatnstjón.

Þegar klaki bráðnar og vatn safnast saman getur myndast mikill hálka. Því er mikilvægt að nota góðar hálkuvarnir og fara varlega, bæði gangandi og akandi.

Förum öll varlega um helgina!


Share: