Hlutastörf í boði hjá Slökkviliði Borgarbyggðar

desember 5, 2008
Slökkvilið Borgarbyggðar óskar eftir tveimur til þremur slökkviliðsmönnum (konum / körlum) í hlutastörf hjá sér á stöðina í Borgarnesi. Umsækjendur þurfa að hafa búsetu í Borgarnesi, vera orðnir fullra 20 ára og uppfylla eftirfarandi skilyrði (þó ekki alveg heilagt).

  • Að vera með iðnmenntun
  • Hafa aukin ökuréttindi (vörubíll)
  • Ekki vera haldinn innilokunarkennd
  • Ekki vera haldinn lofthræðslu
  • Að sjón og lyktarskin sé í lagi
  • Að prúðmennska og háttvísi sé viðhöfð

Umsóknir með upplýsingum um umsækjendur óskast sendar á slökkvilid@borgarbyggd.is. Öllum umsóknum verður svarað.
Upplýsingar gefur Bjarni Þorsteinsson, slökkviliðsstjóri Borgarbyggðar í síma 437 2222.
 

Share: