Hlaupabretti loksins komin í íþróttamiðstöðina.

desember 11, 2001

Þeir fjölmörgu dugnaðarforkar sem stunda þreksalinn glöddust mjög þegar tvö glæný og vönduð hlaupabretti komu í hús um daginn, enda vantar oft tæki í salinn miðað við þann fjölda sem stundar hann reglulega og nær frábærum árangri.

.

Alls eru 42 konur í svokölluðum átaksnámskeiðshópi í þreksalnum og hafa náð góðum árangri. Þær eru svo harðar að þær ætla að æfa um hátíðirnar að sögn Þórunnar þjálfara. Allar fá þó jólasteikina sína en aðeins minni sósu með en vanalega.
Jólabaðið er hjá okkur !


Share: