Hlaðvarpinn – Menningarsjóður kvenna

október 15, 2009
Hlaðvarpinn, menningarsjóður kvenna á Íslandi, auglýsir nú eftir umsóknum um styrki, en umsóknarfrestur er til 11. nóvember og geta umsækjendur verið konur, samtök þeirra, félög eða fyrirtæki. Markmið sjóðsins er að styrkja menningarstarfsemi kvenna sem beinist að því að greina, efla, varpa ljósi á og breyta stöðu kvenna í íslensku samfélagi. Með menningarstarfsemi er átt við hvers kyns listir, rannsóknir og kynningu á menningu kvenna. Nánari reglur um úthlutun er að finna á www.hladvarpinn.is
 

Share: