Héraðsbókasafnið býður rafbækur

desember 20, 2017
Featured image for “Héraðsbókasafnið býður rafbækur”

Héraðsbókasafn Borgarfjarðar í Safnahúsi býður nú lánþegum sínum aðgang að Rafbókasafninu sem þjónar bókasöfnum um allan heim. Þar er mikið magn rafbóka og hljóðbóka. Meginhluti efnisins er á ensku og í formi rafbóka, en hlutur hljóðbóka fer ört vaxandi, enda njóta þær sérlegra vinsælda. Verið er að vinna í að íslenskar rafbækur muni bætast í safnið á næstunni. Líkt og á öðrum bókasöfnum er safnkostur rafbókasafnsins fjölbreyttur, en þar má finna skáldverk, fræðirit og rit almenns efnis, bæði nýtt efni og klassík. Raf- og hljóðbækurnar má lesa og hlusta á, ýmist á vef safnsins, eða í snjalltækjum með öppunum Overdrive eða Libby. Með aðgangi að rafbókasafni geta lesendur lesið bækur í síma eða á spjaldtölvu (öðrum en Kindle. Rafbókasafnið er alltaf opið og þar eru engar sektir, því kerfið sér sjálft um að skila bókum þegar lánstími er útrunninn. Til að fá aðgang að rafbókasafni er nauðsynlegt að eiga gilt bókasafnsskírteini. Allar frekari upplýsingar má sjá á www.safnahus.is og einnig veitir Sævar Ingi Jónsson héraðsbókavörður upplýsingar: bokasafn@safnahus.is eða í síma 4337200.  


Share: