Heitavatnslaust við Hvanneyri í dag, 29. september

september 29, 2020
Featured image for “Heitavatnslaust við Hvanneyri í dag, 29. september”

Vegna leka á stofnæð verður heitavatnslaust eða lítill þrýstingur við Hvanneyri í dag, þriðjudaginn 29. september.

Íbúum er bent á að hafa skrúfað fyrir alla heitavatnskrana til að draga úr hættu á slysi eða tjóni þegar vatnið kemst á að nýju. Í kuldatíð er ráðlegt að hafa glugga lokaða og útidyr ekki opnar lengur en þörf krefur til að koma í veg fyrir að það kólni.

Starfsfólk Veitna biðst velvirðingar á óþægindum vegna þessa.


Share: