Heimsókn sænskra sagnamanna í Snorrastofu

september 5, 2014
Laugardaginn 6. september kl. 17.00 verður í Snorrastofu í Reykholti hópur sænskra sagnamanna á vegum SAMFUNDET SVERIGE – ISLAND. Fyrir hópnum fer sagnamaðurinn og rithöfundurinn Per Gustavsson en ferð hópsins hefur fengið heitið, Kultur og sagoresa med Sagobygden till Island 4.-11. september 2014.
 
Boðið er til dagskrár, sem fram fer á “skandinavísku”, í bókhlöðu Snorrastofu. Dagsskráin er öllum opin og aðgangur er ókeypis. Smellið á “meira” til að lesa dagskrána.
Dagskrá í Snorrastofu 6. september 2014
17.00 Snorrastofa, Bergur Þorgeirsson: Om kultur och medeltidscentret till minne av Snorre Sturlasson
17.15 Gísli Sigurðsson: Muntlighetens roll för sagaskrivningen
18.00 paus
18.15 Geir Waage: Sägner från Reykholt
18.45 Representant för Félag sagnaþula, Sagoberättarnas förening, inleder berättande
 

Share: