Heilsuvika UMSB og Borgarbyggðar

september 26, 2012
Byggjum upp fyrir veturinn!
Vikuna 8.-14. október munu UMSB og Borgarbyggð standa fyrir heilsuviku í Borgarfirði. Vikan er haldin til að vekja athygli á öllu því fjölbreytta íþrótta-, tómstunda- og heilsutengda starfi sem fram fer í sveitarfélaginu. Í boði verða ýmsir opnir tímar, fyrirlestrar og tilboð en fyrst og fremst er vikan hugsuð til að hvetja íbúa á öllum aldri til að huga að heilsu og hreyfingu. Þeim sem hafa áhuga á að vera með í dagskránni þessa viku er bent á að hafa samband við umsb@umsb.is eða asthildur@borgarbyggd.is Vinnustaðir eru sérstaklega hvattir til að hafa samband og panta létta hreyfingu fyrir starfsfólkið í hádeginu eða kaffitímanum. Nánari dagskrá verður auglýst síðar.
 
 

Share: