Heiðar Örn Jónsson nýr slökkviliðsstjóri Borgarbyggðar

apríl 3, 2023
Featured image for “Heiðar Örn Jónsson nýr slökkviliðsstjóri Borgarbyggðar”

Heiðar Örn Jónsson hefur tekið við sem slökkviliðsstjóri Borgarbyggðar, en þær breytingar áttu sér stað 1. apríl sl. Heiðar Örn var áður aðstoðarslökkviliðsstjóri og eldvarnarfulltrúi hjá Borgarbyggð.

Heiðar Örn hóf störf hjá Borgarbyggð árið 2019. Þar áður stafaði hann hjá Brunavörnum Árnessýslu og HSU í sjúkraflutningum. Heiðar er atvinnuslökkviliðs- og neyðarflutningamaður að mennt.

Borgarbyggð býður Heiðari hjartanlega velkominn til starfa.


Share: