Hátíð á laugardag: Hvítárbrúin og dráttarvélin

ágúst 5, 2008
Laxveiði- og sögusafnið í Ferjukoti, Vegagerðin og Sæmundur Sigmundsson standa fyrir samkomu við gömlu Hvítárbrúna kl. 16 á laugardaginn kemur, þann 9. ágúst, í tilefni 80 ára vígsluafmælis brúarinnar.
Sama dag verður 90 ára innflutningsafmælis dráttarvélarinnar á Íslandi minnst í Landbúnaðarsafni Íslands á Hvanneyri og meðal annarra dagskrárliða er samsetning stærstu dráttarvélar landsins.
Sjá nánar á www.landbunadarsafn.is
 
Ljósmynd með frétt: Gamla Hvítárbrúin við Ferjukot. Eileen McCurdy
 

Share: