Borgarbyggð óskar eftir tilboði í húsið við
Gunnlaugsgötu 21b í Borgarnesi, til brottflutnings eða niðurrifs og brottflutnings.
Timburhús á steyptum sökkli, kjallari, hæð og ris samtals 124 ferm (hæð 59m2, ris 12,7 m2).
Óskað er eftir tilboðum í eignina og er tilboðsfrestur til 12.4. 2019. Húsið er í útleigu fram til 6.5.2019. Húsið skal fjarlægt í síðasta lagi 10.júní 2019.
Tilboðum skal skilað skriflega til ráðhúss Borgarbyggðar eða á netfang borgarbyggd@borgarbyggd.is. Nánari upplýsingar veitir Ragnar Frank Kristjánsson sviðsstjóri umhverfis og skipulagssviðs Borgarbyggðar S: 433-7100 eða ragnar@borgarbyggð.is
Borgarbyggð áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.