Gunna Gangó í 25 ár

júní 2, 2022
Featured image for “Gunna Gangó í 25 ár”

Grunnskólabörn í Borgarnesi sem ganga í skólann þurfa mörg að þvera Borgarbrautina við Himnastigann á leið sinni í skólann. Á þessari gangbraut hefur Guðrún Birna Haraldsdóttir, eða Gunna Gangó, sinnt gangbrautarvörslu í 25 ár og tryggt að börnin og aðrir gangandi vegfarendur komist örugg yfir götuna.
Nú er komið að leiðarlokum og mun Gunna hætta störfum í lok skólaárs. Af því tilefni var henni komið á óvart að morgni 2. júní þegar fjölmargir íbúar komu og gengu með Gunnu yfir götuna.
Starfandi sveitarstjóri færði henni þakklætisvott frá sveitarfélaginu, auk þess sem fulltrúar samfélagsins færðu henni kveðjugjöf með kærri þökk fyrir hennar tryggu þjónustu við íbúa.

 

Ljósm. Gunnhildur Lind. 


Share: